Veitingahús
Við bjóðum upp á heildarlausnir í prentun fyrir veitingastaði, kaffihús og aðra mat- og drykkjarstaði. Rétt hannað prentefni styrkir upplifun gesta og eykur faglega ásýnd staðarins.
Við prentum meðal annars matseðla, borðstanda, auglýsingastanda, nafnspjöld, drykkjaseðla og annað kynningarefni sem nýtist í daglegum rekstri og við sérstök tilefni. Lausnirnar eru sérsniðnar að þörfum hvers staðar með áherslu á endingu, skýra framsetningu og fallega hönnun.
Svansvottuð og umhverfisvæn prentun sem sameinar gæði, notagildi og sjálfbærni.