Við erum Svansvottuð Prentstofa
Við hjá Litróf leggjum mikla áherslu á umhverfismál. Litróf hlaut endurvottun Svansins 2025 með strangari viðmiðunum og nýju vottunarkerfi
Við hjá Litróf leggjum mikla áherslu á umhverfismál. Litróf hlaut endurvottun Svansins 2025 með strangari viðmiðunum og nýju vottunarkerfi
Svansvottuð prentsmiðja vinnur að umhverfismálum útfrá heildrænni nálgun. Þar er mikilvægt að nota hráefni eins og best verður á kosið og minnka þar að leiðandi sóun og skipta út efnavöru sem hefur skaðleg áhrif á heilsu og umhverfið. Reynslan hefur sýnt að með því að minnka sóun á hráefni er einnig hægt að halda kostnaði í skefjum og hámarka framleiðni. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Prentsmiðjan er undir eftirliti Umhverfisstofnunar.
Frumskilyrði að við getum merkt okkar vöru er að við notum samþykktan pappír, af Svaninum og eða EU blómi.