Leiðbeiningar til viðskiptavina
Við biðjum viðskiptavini okkar að kynna sér vel leiðbeiningar sem við höfum tekið saman um frágang svo komast megi hjá töfum og aukakostnaði.
- Nauðsynlegt er að fara vandlega yfir PDF-skjalið áður en það er sent til okkar.
- Mikilvægt er að síður séu miðjusettar á prentfleti
- Þegar nota á PDF úr Microsoft office forritum þarf að passa að valið sé „Press Quality“ til prentunar á pdf til að fá sem bestu gæði í PDF fælinn.
- Til að ekki komi leturvandamáli þá þarf að velja „Download as soft font“ undir „TrueType Font:“
- Skjöl þarf að vista í hæstu upplausn í PDF (High Res) og myndum þarf helst að skila inn í 300 punkta upplausn.
- Stillingarskrár: Samtök iðnaðarins – RGB vinnsluferli
Skrársnið mynda
- Við getum tekið við öllum tegundum af mynda formati, jpg, gif, png o.fl.
- Upplausn er best um 250 – 300 dpi fyrir myndir til prentunar. Myndir úr stafrænum myndavélum koma þokkalega út þrátt fyrir að upplausn fari niður í 150 dpi, við mælum ekki með því en það gætu í sumum tilvikum gengið.
- Skannaðar myndir eru viðkvæmari fyrir lágri upplausn.
- Gæta skal að því að upplausn mynda m.v. stærð á síðu sé næg til að skila fullnægjandi prentgæðum t.d. eru 72 dpi myndir af netinu ekki hæfar til offsetprentunnar.
Litir
- Við styðjumst við PDF/X-4 stillingar í prentferlinu. Það þýðir RGB litastýring á myndum en CMYK litir á öðru umbroti.
- Allar RGB myndir verða að vera með litaprófílum (t.d. sRGB eða AdobeRGB).
- Ekki skal breyta eldri CMYK myndum í RGB.
- Samanlögð þekja í CMYK: Samanlögð þekja í fjórlit má helst ekki fara upp fyrir 320%.
- Svarthvítar og dúómyndir sem eiga að prentast svarthvít s.s. í einum lit er best að vista sem grayscale, ekki RGB eða CMYK og dúótone mynd sem svart + Pantone.
- Þegar prentað er á náttúrulegan pappír (svo sem Munken, Scandia eða sambærilegar tegundir) þá er gott að létta myndir lítillega í forvinnslunni. Þessi pappír er gjarnan grófari og drekkur þar af leiðandi mikinn prentlit í sig.
- Undir 100% SVARTA fleti er hæfilegt að setja t.d. 40% CYAN, 30% MAGENTA og 30% YELLOW til að fá svarta litinn vel svartan. (þetta á ekki við um letur)
- Ekki má nota litinn Registration Color, alltaf að nota “black” því registration liturinn er í fjórlit, sérstaklega athugið varðandi letur.
- Overprint skipunin er notað þegar unnið er með gegnsæi hluta (transparency), og rétt útlit á PDF skrá fæst því ekki nema að velja þennan valkost.
- Ef „overprint“ skipunin er t.d. valin á hvítu letri þá hverfur letrið, þar sem það prentast ofan á það sem undir er í stað þess að tekið sé undan því.
- Það er auðsynlegt er að láta allar myndir og litafleti sem eiga að ná út í skurð blæða 3 mm út fyrir skorna stærð.
Letur
- Best er að nota TrueType Font
- Leyfilegt er að nota RGB í vektor gögn en alls ekki í svartan texta.